Skilalýsing- raðhús við Hringtún 42-48 - Dalvík
3ja herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð, stærð 88,4m2, afhending síðsumars 2023.
Húsið verður byggt samkvæmt teikningum gerðum af Arkibygg og hönnuð af Ástríði Birnu Árnadóttur arkitekt og Stefaníu Helgu Pálmadóttur byggingafræðingi.
Byggingaraðili er EGO hús ehf á Akureyri.
Íbúðirnar seljast fullfrágengnar (byggingarstig 7 síðla sumars 2023
Húsið er fjögurra íbúða raðhús á einni hæð ásamt sameign. Í sameign eru sérgeymsla fyrir hverja íbúð, ásamt vagna- og hjólageymslu.
Húsið er staðsteypt í plasteinangrunarkubba. Undirstöður eru einnig steyptar í plasteinangrunarkubba. Undir gólfplötu er einangrað með 4” plasteinangrun. Gólfplata er steypt, pússuð með flotbretti og rétt af með flotmúr.
Þök eru einhalla, byggð upp með krosslímdum timbureiningum, einangruð með steinull að ofan og tveimur lögum af asfalt dúk.
Fráveitu- og drenlagnir lagðar samkvæmt teikningu og tengdar við fráveitukerfi.
Innveggir eru steyptir, hlaðnir eða klæddi gips. Allir veggir verða sandsparslaðir þar sem við á og fullmálaðir í ljósum lit samkvæmt vali hönnuðar. Loft verða klædd gipsi og máluð eða klædd með hljóðdempandi dúk.
Gólf forstofu og baðherbergis verða flísalögð. Önnur gólf íbúðar verð með vönduðu 12 mm harðparketi.
Innihurðir verða yfirfelldar með stálhandföngum.
Innréttingar í eldhúsi verða sprautulakkaðar og/eða spónlagðar/viðarlíki skv. vali hönnuða. Spanhelluborð með viftu þar yfir. Bakaraofn með blæstri. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur og frystir). Ábyrgð raftækja er 5 ár.
Á milli bekkja og efri skápa í eldhúsi verða flísar eða fiber plötur með t.d. steypuáferð. Bekkjarplötur verða harðplast plötur.
Framhliðar fataskápar verða hvítar eða spónlagðar/viðarlíki skv. vali hönnuða. Allar skúffur og skápahurðir verða með ljúflokum af viðurkenndri gerð.
Baðherbergi verður með sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Stórt (aflangt) niðurfall í gólfi og glerhlið niður í gólf. Í kringum sturtu koma flísar eða vatnsheldar fiber/plast plötur með t.d. steypuáferð. Innrétting og skápar verða hvít hálfmatt eða annar litur skv. vali hönnuða.
Hreinlætis-og blöndunartæki í húsinu verða af viðurkenndri gerð. Varmaskiptir fyrir neysluvatn verður uppsettur og tengdur.
Öll ljós íbúðar verða fullfrágengin ásamt lýsingu undir efri skápum í eldhússinnréttingu. Upptekin loft í alrými með innfeldum ljósum, önnur loft niðurtekin.
Útiljós samkvæmt teikningu verða uppsett og frágengin.
Gólfhitakerfi er í öllum gólfum, lagt í hvert rými fyrir sig og stýring fyrir hvert rými.
Neysluvatnslagnir (rör í rör) verða lagðar í gólf að tengistað með tilheyrandi búnaði.
Röralagnir ásamt tilheyrandi dósum fyrir rafmagn og síma/internet lagt í veggi og loft samkvæmt
teikningu. Raf og síma-/netlagnir verða fullfrágengnar. Rafmagnstafla verður fullfrágengin. Rör verður
lagt frá aðaltöflu að bílastæði fyrir rafhleðslu á bifreiðum.
Útveggir verða múraðir og málaðir með lit skv. vali hönnuða. Hurðir og gluggar eru úr timbri og gluggar klæddir lituðu áli að utan. Tvöfalt gler.
Lóðin verður jöfnuð og lögð grasi. Stéttar verða steyptar, en bílaplön malbikuð. Snjóbræðslukerfi verður í stéttum og í bílaplönum. Snjóbræðslukerfi verður lokað kerfi, áfyllt frostlegi og tilbúið með varmaskipti.
Mokað verður út fyrir sólpalli og fyllt með frostfríu efni.
Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).
Ath. minniháttar sprungur geta myndast á máluðum flötum nýbygginga á fyrstu mánuðum eftir afhendingu og telst slík sprungumyndun ekki til ágalla.
Áætlaður afhendingartími íbúðanna er í síðla sumars 2023. Afhending íbúðanna telst hafa farið fram þegar lyklaafhending hefur farið fram. Þegar hver íbúð hefur verið afhent fer fram sameiginleg skoðun kaupenda og fulltrúa seljenda þar sem farið er yfir helstu atriði og úrbætur gerðar ef einhverjir ágallar finnast.
Allar frekari upplýsingar veita
Arnar 773 5100 [email protected]
Friðrik 773 5115 [email protected]
Svala 663 5260 [email protected]