Steinahlíð 2B
Mjög rúmgott og talsvert endurnýjað 7 herbergja raðhús á góðum stað með innbyggðum bílskúr. Fallegt útsýni. Góð timburverönd.
Eignin skiptist í: Stofu, borðstofu, eldhús, tvö baðherbergi, fimm svefnherbergi, geymsla, þvottahús og bílskúr.
Gólfefni: Harðparket er á stofu, borðstofu, eldhúsi, herbergjum bæði á efri og neðri hæð, harðparket á stiga. Flísar á baðherbergjum. Ekki er gólfefni á forstofu, bílskúr og þvottahúsi.
Innréttingar og innihurðir: Máluð hvít eldri innrétting í eldhúsi, hvítar innréttingar á baðherbergjum. Innihurðir eru hvítar síðan 2022, nema í forstofu þar er hurð með gleri sem hefur verið máluð hvít.
Nánari lýsing:
Forstofa ný útidyrahurð með fallegum gluggum, gólfefni vantar. ( komið inn á pall og nokkrar tröppur upp á efri hæð og niður á jarðhæð.)
Efri hæð:
Stofa/Borðstofa harðparket er á stofu og borðstofu, gengið er út á góðar suðursvalir
Eldhús máluð eldri innrétting, harðparket á gólfi, borðkrókur, fallegt útsýni.
Svefnherbergin eru tvö á efri hæð, harðparket á þeim báðum.
Baðherbergi er með flísalögðu gólfi, baðþyljum á veggjum, baðkar með sturtutækjum, upphengt salerni, hvít innrétting.
Stigi milli hæða er steyptur með fallegu glerhandriði.
Neðri hæð:
Gangur með harðparketi, gengið út á góða suðurverönd.
Herbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfi. ( búið er að setja léttan vegg og minnka eitt herbergið þar sem tekið var af bílskúr auðvelt að breyta til baka).
Baðherbergi þar eru flísar á gólfi og veggjum sem hafa verið málaðar, sturta með gleri, lítil innrétting.
Bílskúr innangengt er úr íbúð í bílskúr sem er rúmgóður .
Þvottahús/Geymsla úr bílskúr er gengið niður nokkra tröppur í rúmgott þvottahús og inn af þvottahúsi er góð geymsla
Annað:
- Þak endurnýjað árið 2017.
- Handrið sett á stiga úr gleri árið 2020.
- Harðparket lagt á árið árið 2020.
- Innihurðir nema forstofuhurð endurnýjaðar 2022.
- Útadyrahurð og hurð út á pall á neðri hæð eru nýlegar.
- Tengi fyrir hleðslustöð.
- Rafmagnstafla endurnýjuð og skipt um tengla og rofa.
- Ljósleiðari kominn í hús.
- Geymsluskúr á lóð.
- Góð verönd.
- Góða staðsetning.
Húseignin er í einkasölu hjá Fasteignasölu Akureyrar.
Allar frekari upplýsingar veita
Arnar 773 5100 [email protected]
Friðrik 773 5115 [email protected]
Svala 663 5260 [email protected]