Skemmtileg íbúðarhúsalóð á flottum stað í Fnjóskadal!
Skógahlíð, lóð 5
3514m2 eignarlóð úr landi Skóga í Fnjóskadal, skráð íbúðarhúsalóð og liggur nokkuð hátt í landinu og frá henni er flott útsýni, örstutt frá gangnamunna Vaðlaheiðarganga að sutan..
Búið er að leggja að landinu rafstreng, ljósleiðara, frárennslislagnir, lagnir fyrir heitt og kalt vatn er við lóðarmörk. Leyfilegt byggingarmagn er 400m2 á tveimur hæðum,
Skv. deiliskipulagi á svæðinu eru 9 lóðir sem eru skilgreindar sem lóðir fyrir íbúðarhús. Lóðarmörk og byggingarreitir eru óbreyttir. Leyfilegt er að byggja innan hverrar lóðar eitt íbúðarhús á 1-2 hæðum með hámarksbyggingarmarmagni 400 m2 og hámarkshæð 9,0 m frá gólfkóta neðri hæðar. Hús eru almennt á einni hæð en geta verið á tveimur hæðum ef landhalli gefur tilefni til og verða þá hús með aðalhæð auk kjallara/bílageymslu. Þá verður heimilt að hafa eitt aukahús á einni hæð innan hverrar lóðar (s.s. gestahús, geymsla, vinnustofa, bílskúr). Hámarksstæð aukahúss er 80 m2 og hámarkshæð 4,5 m. Lóðarhafi öðlast með kaupum sínum rétt til notkunar á köldu vatni úr vatnsveitu Skógalands ehf sem seljandi mun útvega að lóðarmörkum. Kaupandi mun að öðru leyti sjá um kaup á rafmagni og heitu vatni svo sem hann óskar. Lóðir og vegur að þeim afhendast í því ástandi sem það er í nú.
Verð kr. 9.500.000.-
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]