Viltu eignast "Penthouse" íbúð á Akureyri með ótrúlegu útsýni?
Fasteignasala Akureyrar sími 460-5151.
Einkasala
Mjög góð 3ja herbergja íbúð, 86,1m2 á efstu hæð í Drekagili 28. Úr íbúðinni er stórfenglegt útsýni til suðurs, vesturs og austurs.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, tvö herbergi, stofu, baðherbergi, geymslu og geymslu í kjallara.
Forstofa: Þar er gott fatahengi og parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð með eikarparketi á gólfi og rúmgóðum svölum í vestur.
Hjónaherbergi er með sexföldum fataskáp með hvítsprautuðum hurðum.
Barnaherbergi er með eikarparketi á gólfi.
Baðherbergi með hvítum hreinlætistækjum, sturtu m/glervegg, ljósgrænum flísum á gólfi og upp á veggi, efri hluta veggjar er með ljósum flísum. Hvítsprautuð innrétting með hvítum bekk, handlaug, og spegli.
Eldhús er með nýlegri innréttingu úr spónlögðum kirsuberjaviði, ljósum borðplötum, keramikhelluborð, gufugleypir og ofn úr burstuðu stáli, ( gömul uppþvottavél fylgir, ekki vitað um ástand hennar.)
Dökkar flísar á milli efri og neðri skápa, á gólfinu eru brúnar flísar.
Íbúðinni fylgja tvö geymslurými. Önnur geymslan er í íbúðinni en hin er í kjallara, báðar með góðu hilluplássi. Þvottahús er á hæðinni og er sameiginlegt með tveimur öðrum íbúðum, svalir með snúrum á eru út úr þvottahúsi.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]